Landris Byggingar ehf. er alhliða byggingaverktaki með sérhæfingu í nýbyggingum og útboðsverkefnum. Fyrirtækið sérhæfir sig í uppsteypu mannvirkja og býður upp á heildarlausnir á sviði steyptra, forsteyptra og stálgrindarbygginga.
Við tökum að okkur uppsteypu húsa, uppsetningu forsteyptra eininga og byggingu stálgrindarhúsa, með áherslu á gæði, fagmennsku og áreiðanleika í öllum verkþáttum.